Færsluflokkur: Bloggar

Fjáraustur eða hvað?

Ég las frétt í dag um hinn óstöðvandi og duglega hóp Vestmannaeyinga sem berjast fyrir göngum milli lands og eyja. Þetta eru ekki einu göngin sem barist er fyrir á Íslandi enda er Ísland ögrum skorið og erfitt yfirferðar og nútíma fólk vill betri samgöngur.

Ekki ætla ég að leggjast í útreikninga á hagkvæmni slíkra ganga þar sem ýmsir "snillingar" hafa sýnt fram á að allar pólitískar framkvæmdir má reikna út sem bæði hagkvæmar og óhagkvæmar. Dæmi um slíka útreikninga eru t.d. arðsemisútreikningar fyrir Kárahnjúkavirkjun, skuldir Orkuveitunnar og síðast en ekki síst Héðinsfjarðargöng milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Allt eru þetta atriði sem hafa bæði hafa verið reiknuð út í mínus og plús.

Ég ætla með öðrum orðum ekki að taka inn tölur eins og hversu mikið Vestmannaeyjar skaffa fyrir þjóðarbúið og hvernig bera má saman kostnað við göng og rekstrarkostnað Herjólfs.

Ég mun ekki hlusta á nein rök eins og þau að hlutafélag verði stofnað um byggingu ganganna og að göngin borgi sig upp með vegatollum. Kostnaðurinn mun alltaf bitna á þjóðarbúinu á endanum, sama hvort göngin eru borguð í slumpum upp úr vasa bílstjóra eða hvort þau eru borguð af ríkinu.

Það sem vakti athygli mína við göngin til Vestmannaeyja er sú staðreynd að hópurinn telur að göngin muni kosta 20-25 milljarða króna. Við skulum ekki einu sinni horfa á neðri töluna því að eðli slíkra framkvæmda er að verða dýrari en áætlanir gerðu ráð fyrir. Til að gæta sanngirni getum við tekið hærri töluna, þ.e. 25 milljarðar. Miðað við Wikipedia þá eru Vestmannaeyingar 4175 talsins. Þetta gerir tæplega 6 milljónir á haus.

Í Reykjavík búa, samkvæmt Wikipedia, 114.800 manns. Ef við myndum veita hlutfallslega sömu upphæð til lagfæringa á samgöngukerfi Reykjavíkur þá yrðu það 687,4 milljarðar.

Á höfuðborgarsvæðinu (afmarkast af Mosfellsbæ í norður og Hafnarfirði í suður) búa skv Wikipedia 182.482 manns. Ef hlutfallslega sama upphæð yrði notuð í samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu yrðu það samtals 1092,7 milljarðar.

Spurning mín er:

Afhverju getur höfuðborgarsvæðið ekki haldið uppi þokkalegum almenningssamgöngum?


mbl.is Telja jarðgöng milli lands og Eyja tæknilega framkvæmanleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leigumiðlanir

Leiðumiðlanir á Íslandi eru merkilegt fyrirbrigði. Ef maður leitar að "leigumiðlun" á Google koma 20.100 niðurstöður.

Fyrsta sem kemur upp er heimasíðan "tilleigu.is". Síðan lítur vel út og maður hugsar sér gott til glóðarinnar, setur inn leitarskilyrðin og smellir svo á "Hefja leit". Skilaboðin "engar eignir fundust" kemur upp. Greinilegt að leitarskilyrðin voru of þröng þannig að maður víkkar þau og leitar aftur. "engar eignir fundust" kemur aftur upp. Ég prófaði að taka út öll skilyrði og leita. "engar eignir fundust" kemur aftur upp.

Svipaða sögu er að segja af heimasíðunni "Leiguskrá", nema ef maður tekur öll leitarskilyrði út þá koma 5 niðurstöður

Ég dáist að hugmyndafluginu sem þarf til að bjóða upp á svona mörg leitarskilyrði til að flokka á milli 5 íbúða.

 Leigulistinn virðist vera gagnlegasti og virkasti vefurinn, enda rukka þeir líka 2850 á mánuði. Spurning hvort það sé þess virði þegar maður skoðar þá staðreynd að það eru ekki nýskráðar meira en ca 2-3 tveggja herbergja íbúðir á dag og 3-4 þriggja herbergja íbúðir á dag. Flestar kosta þær hendi og fót.


Blogg

Afhverju bloggar fólk? Og afhverju ætla ég að blogga? Ég veit það ekki sjálfur. Þetta er bara ágætis leið til að tjá sig, hugsa ég. Það er nú þannig að mann langar oft til að segja fólki eitthvað, m.a. þess vegna á maður jú vini, maður er manns gaman osfv. Stundum er maður ekki nálægt neinum en hefur samt þörf fyrir að segja eitthvað, sniðugt eða ósniðugt, og þá kemur bloggið sterkt inn sem eins konar ruslatunna fyrir hugsanir.

Maður veit líka að alls konar fólk hefur það sem hobbý að ráfa um bloggsíður til að forvitnast um borgarann. Það er fínt og vona ég að því líði vel. Allavega er þá komin enn ein ruslatunna hugsana manns úti í bæ sem þessir forvitnu einstaklingar geta rótað í.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband