Vísindakirkjan - halelúja

E-mælir

Hvað fær B-mynda leikara eins og Tom Cruise til að ganga í þennan hóp vitleysinga? 

Það var komið að því að ég sem hef bölvað vísindakirkjunni í langan tíma skrifi eitthvað um þá.

Fyrir nokkrum árum var rugludallur sem hét Ron Hubbard. Hann skrifaði vísindaskáldsögur, og alveg heilan helling af þeim. Eitthvað hefur hann getað meira heldur en haldið á penna því að hann fór að skapa söfnuðinn sem við köllum Vísindakirkjuna. Sú staðreynd að Hubbard var vísindaskáldsöguhöfundur skýrir líka marga vitleysuna í þessum söfnuði. Ef maður les útskýringar vísindavefs Háskóla Íslands á vísindakirkjunni (http://visindavefur.hi.is/?id=3321) þá getur manni ekki dottið annað í hug en að maður sé að lesa einhverja Star Trek vitleysu.

  • Svo að ég vitni í vísindavefinn þá manneskjan hvorki hugur né líkami heldur andleg vera, þetan!
  • Við erum að sögn öll með ör á undirmeðvitundinni, kölluð engrams, og þau eru undirrót vandamála okkar!
  • Til að losna við örin þarf maður að ganga í gegnum viðtalsferli sem kallað er auditing þar sem notast er við E-mæli sem mælir andlega vanlíðan okkar með því að mæla rafsegulviðnám líkamans!!!

Eins og ég skil þetta þá er þessi vísindalegi mælir ein af ástæðum fyrir rangnefninu Vísindakirkja.

Þessi E-mælir er nóg til þess að fá heilbrigðan mann til þess að efast um gildi söfnuðarins.

Samkvæmt heimasíðunni Secrets of Scientology: The E-meter þá er þessi mælir ekkert annað heldur en Wheatstone brú eða með öðrum orðum; viðnámsmælir. Það er því kannski ástæða fyrir því að þessi mælir er af sumum kallaður "an overpriced ohm-meter", eða yfir-verðlagður viðnámsmælir! Ég skora á áhugasama að skoða ofangreinda síðu. Ég ábyrgist ekki sannleiksgildi hennar en, andskotinn hafi það, hún er trúlegri heldur en bullið frá Vísindakirkjunni.

Fyrir þá sem hafa áhuga þá læt ég fylgja með "blueprint" af E-meter neðst á síðunni (að sjálfsögðu óstaðfest).

Svo að ég klári þessa stuttu umjöllun mína þá verð ég að vitna aðeins í vísindavefinn:

"Eftir því sem Vísindakirkjufólk kemst ofar í þróunarferli sínu innan safnaðarins fær það aðgang að meiri upplýsingum um heimsmyndina sem sett er fram. Þessi heimsmynd er sögð líkjast því sem fram kemur í vísindaskáldsögum L. Ron Hubbard. Meðal annars kemur fram að geimvera að nafni Xenu hafi fyrir 75 milljónum ára sent billjónir þetana til jarðarinnar, sprengt í loft upp og heilaþvegið. Þessir þetanar eru enn á jörðinni, líkamslausir í klösum, og festa sig á okkur mannfólkið nema við losum okkur við þá með viðtalsferlinu sem nefnt er hér að ofan. Upplýsingum sem þessum er haldið leyndum fyrir utanaðkomandi aðilum og hefur Vísindakirkjan meðal annars staðið í deilum við fólk sem hefur birt leynilegu upplýsingarnar á vefsíðum sínum"

Bull eða heilagur sannleikur? Það er nú stóra spurningin!

 Áhugaverðar heimasíður:
http://visindavefur.hi.is/?id=3321 Vísindavefur Háskólans
http://en.wikipedia.org/wiki/Scientology Umfjöllun á Wikipedia
http://scientology.org/ Opinber heimasíða vitleysinganna

Síður frá andstæðingum vísindakirkjunnar
http://www.scientology-lies.com/
http://www.scientology-kills.org/ 
http://www.xenu.net/

 

 


Fleiri myndir

Misræmi á milli framboðs og eftirspurnar í íslenskum stjórnmállum.

Jón Ormur Halldórsson

Jón Ormur Halldórsson skrifaði nýlega grein um misræmi á milli framboðs og eftirspurnar í íslenskum stjórnmálum. Með þeim orðum á hann við að framboðið á stjórnmálamönnum samræmist ekki eftirspurn landsmanna.

Svo að ég vitni beint í Jón þá segir hann:

"Hvað skyldi ráða vali manna á Íslandi á stjórnmálaflokkum? Eru menn að leita að færum einstaklingum með mikla þekkingu og yfirsýn og í leiðinni að ósérplægnu fólki sem lætur ekki stjórnast af hagsmunum sínum eða vina sinna? Ef svo er virðist hafa komið upp óheppilegt misræmi á milli eftirspurnar og framboðs í íslenskum stjórnmálum. Eða finnst einhverjum það einkenni á íslenska stjórnmálaheiminum hvað hann er vel mannaður af fólki sem ber af í okkar þjóðfélagi fyrir þekkingu, ósérdrægni og fagmennsku?".

Mér þótti þessi grein áhugaverð og hvet fólk með pólitískan áhuga til að renna yfir hana:
http://visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=/20060816/SKODANIR04/108160001/1038

 


Hundahelförin - Á að banna Pit bull?

c_documents_and_settings_orunn_og_bjossi_my_documents_my_pictures_pitbull.jpg

Rakst á soldið sérstaka síðu þar sem fólk er hvatt til þess að sniðganga Þýskar vörur til að mótmæla aðgerðum þýskra stjórnvalda gegn eign fólks á Pit bull hundum og nokkrum öðrum tegundum.
http://www.amstaffs.dk/HOLOCAUST-e.htm
Þeir sem standa að síðunni segja aðgerðir stjórnvalda vera helför gegn hundum. Þessi síða er alveg hlægilega fáránleg og í raun engum til gagns en þetta vakti mig aðeins til umhugsunar.

Áróður heimasíðunnar snýst um að hundar fæðist ekki sem drápshundar heldur séu þeir þjálfaðir til að verða það. Þetta minnir óneitanlega á áróður NRA sem eru öfgasamtök byssueigenda í Bandaríkjunum. Þeir segja einmitt: "Guns don't kill people, people do" og eiga þar að sjálfsögðu við að byssan skjóti ekki sjálf heldur sá sem heldur á henni.

Ég er stuðningsmaður þess að banna byssur til þess að vitleysingar komist ekki í þær og noti í einhverjum klikkuðum tilgangi. Með sömu rökum finnst mér allt í lagi að banna þær tegundir hunda sem auðveldast er að breyta í drápsdýr.

Það er vitað mál að sumar tegundir hunda eiga auðveldara með að "snappa" heldur en aðrar og það hlýtur að vera ástæða fyrir því að þeir sem vappa um göturnar með gullkeðjur um hálsinn og hund í bandi eru alltaf með sömu tegundirnar. Sér einhver annars fyrir sér töffara gangandi um með púddilhund?

Mér finnst að þessi umræða megi alveg eiga sér stað á Íslandi, helst áður en slys verða t.d. á börnum. Það er ekki langt síðan að barn dó í Danmörku þegar það ætlaði að klappa hundi og hundurinn réðst á það. Ég held að það sé alveg öruggt að líklegra er að klikkaðir hundar ráðist á börn heldur en þeir sem eru taldir rólegri.


Verkfræðingar með áhættubónus?

Nú er það ljótt. Það virðist vera sem nokkrir verkfræðingar hafi lent í spennandi aðstæðum!

Að mati flestra er starf verkfræðings ekki mjög spennandi, það snýst td. um rökhugsun, skipulagningu, stjórnun og jafnvel diffurjöfnur hjá þeim allra nördalegustu.

Ef við tökum eitt sérstaklega slæmt dæmi um nörd þá er það hann Sævar vinur minn. Hann er dæmi um hardcore nörd sem á sér varla viðreisnar von. Það þarf ekki nema að lesa blog síðuna hans til að sannfærast: http://saevarl.blog.is/

Allavega, þá er þetta eitthvað spaugilegt. Ég sé alveg svipinn á verkfræðingunum fyrir mér. Þarna hafa þeir setið, klæddir flíspeysu og gallabuxum, nokkrir í skyrtu með kúlupenna í brjóstvasanum, sitjandi fyrir framan tölvuna með AutoCad kveikt. Vaða þá ekki inn skítugir útlenskir hippar og nota illa skilgreind rök til að trufla vinnu verkfræðinganna.  Hvað næst?


mbl.is Mótmælendur tóku yfir verkfræðistofu á Reyðarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hizbollah og MR-ingur

Gunnar Dofri Ólafsson

Ég var á mínu daglega "vappi" um veraldarvefinn í dag og kíkti við á heimasíðu SUS. Þar sá ég grein eftir Gunnar Dofra Ólafsson, 18 ára MR-ing. Hann ræðir þar um deilu Hizbollah og Ísraela og þrátt fyrir tilraun hans til að vera hlutlaus þá sést greinilega hvorn aðila stríðsins hann skilur betur.

Hvað fær 18 ára MR gutta til að skrifa grein um þetta? Er þetta bara leið til að vekja á sér athygli á leið upp stigann í SUS eða hefur hann virkilega eitthvað að segja um málefnið sem maður hefur ekki heyrt áður?

Grein Gunnars: http://www.sus.is/greinar/nr/1409


Ofurlaun og ólaun

Ofurlaun eru merkilegt fyrirbrigði. Þau eru eiginlega jafn ótrúleg og ofurmaðurinn eða "Superman" eins og hann heitir á frummálinu. Þau eru ótrúleg að því leitinu til að maður getur varla ímyndað sér þessar tölur.

Hér sit ég að klára lokaverkefnið mitt eftir 5 ára háskólanám, búinn að reyna að þrauka á námslánum sem eru lægri heldur en lægstu laun og gæti rétt við fjárhaginn með  broti af "ofur" mánaðarlaunum. Þess má líka geta að íbúðarkaup eru ekki á dagskrá alveg strax sökum peningaleysis, þrátt fyrir að íbúðir sem ég hef skoðað kosti bara tvenn útborguð "ofur" mánaðarlaun.

Maður veltir því fyrir sér hvernig það er hægt að halda því fram að hæft fólk fengist ekki til þessara starfa fyrir minni pening. Er það virkilega svona? Erum við þá að segja að allir þeir sem eru hæfir til þess að stjórna séu fégráðugir? Ef mér yrði boðið starf hér á Íslandi og fengi 5 milljónir í mánaðarlaun, afhverju ættu þá 10 milljóna mánaðarlaun í Bandaríkjunum að toga mig í burt? Eru 5 milljónir ekki nóg fyrir nauðsynjum? Þá á ég við "nauðsynjar" eins og sportbíl, jeppa, stórt einbýli osfv.

Svo er líka annað sem verður að horfa til. Eru þessir gæjar virkilega svo eftirsóttir erlendis? Afhverju látum við ekki bara reyna á það hvort þeir fara eða ekki? Er ekki réttast að sjá fyrst hvort fólksflóttinn verður og bjóða þá betri laun þar til flóttinn hættir, heldur en að bjóða strax þessar upphæðir án þess að þær séu nauðsynlegar?

Áður en ég er til í að gúddera þessi háu laun, þá vil ég að ofurstjórnendurnir komi fram og segi opinberlega: "Ég er hæfur stjórnandi en fégráðugur, og ég fer annað ef ég fæ ekki þessa upphæð". Fyrr en það gerist skulum við halda þessum launum nær raunveruleikanum.

 


mbl.is Össur telur að verkalýðshreyfingin eigi að berjast gegn ofurlaunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meira um Árna Johnsen

Þá er það ljóst sem mér annars fannst sjálfsagt. Sakmvæmt frétt á ruv.is er Árni Johnsen ekki hæfur til þess að setjast á löggjafarþing (http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item80914/). Að brjóta af sér er að sjálfsögðu frekar óheppilegt þegar talað er um þingmenn. Að brjóta viljandi af sér, vera dæmdur og finnast maður samt ekki hafa gert neitt rangt er vottur um siðblindu. Við getum líka bætt við framkomu hans við fréttamenn á þeim tíma sem þetta mál kom upp.

Ég sé fyrir mér hóp Vestmannaeyinga ganga á fund forseta með undirskriftalista til stuðnings uppreisnar æru Árna svo að hann komist á þing. "Kæri forseti. Við viljum biðja þig um að veita Árna uppreisn æru til að hann komist aftur á þing, jafnvel þótt hann sjái ekki eftir neinu,,,"


Lýst er eftir útibekk

Bekkurinn sást síðast í miðborg Reykjavíkur, nakinn, á fjórum fótum og með óheflaða framkomu.
mbl.is Lýst eftir útibekk sem unglingar smíðuðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjáraustur eða hvað?

Ég las frétt í dag um hinn óstöðvandi og duglega hóp Vestmannaeyinga sem berjast fyrir göngum milli lands og eyja. Þetta eru ekki einu göngin sem barist er fyrir á Íslandi enda er Ísland ögrum skorið og erfitt yfirferðar og nútíma fólk vill betri samgöngur.

Ekki ætla ég að leggjast í útreikninga á hagkvæmni slíkra ganga þar sem ýmsir "snillingar" hafa sýnt fram á að allar pólitískar framkvæmdir má reikna út sem bæði hagkvæmar og óhagkvæmar. Dæmi um slíka útreikninga eru t.d. arðsemisútreikningar fyrir Kárahnjúkavirkjun, skuldir Orkuveitunnar og síðast en ekki síst Héðinsfjarðargöng milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Allt eru þetta atriði sem hafa bæði hafa verið reiknuð út í mínus og plús.

Ég ætla með öðrum orðum ekki að taka inn tölur eins og hversu mikið Vestmannaeyjar skaffa fyrir þjóðarbúið og hvernig bera má saman kostnað við göng og rekstrarkostnað Herjólfs.

Ég mun ekki hlusta á nein rök eins og þau að hlutafélag verði stofnað um byggingu ganganna og að göngin borgi sig upp með vegatollum. Kostnaðurinn mun alltaf bitna á þjóðarbúinu á endanum, sama hvort göngin eru borguð í slumpum upp úr vasa bílstjóra eða hvort þau eru borguð af ríkinu.

Það sem vakti athygli mína við göngin til Vestmannaeyja er sú staðreynd að hópurinn telur að göngin muni kosta 20-25 milljarða króna. Við skulum ekki einu sinni horfa á neðri töluna því að eðli slíkra framkvæmda er að verða dýrari en áætlanir gerðu ráð fyrir. Til að gæta sanngirni getum við tekið hærri töluna, þ.e. 25 milljarðar. Miðað við Wikipedia þá eru Vestmannaeyingar 4175 talsins. Þetta gerir tæplega 6 milljónir á haus.

Í Reykjavík búa, samkvæmt Wikipedia, 114.800 manns. Ef við myndum veita hlutfallslega sömu upphæð til lagfæringa á samgöngukerfi Reykjavíkur þá yrðu það 687,4 milljarðar.

Á höfuðborgarsvæðinu (afmarkast af Mosfellsbæ í norður og Hafnarfirði í suður) búa skv Wikipedia 182.482 manns. Ef hlutfallslega sama upphæð yrði notuð í samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu yrðu það samtals 1092,7 milljarðar.

Spurning mín er:

Afhverju getur höfuðborgarsvæðið ekki haldið uppi þokkalegum almenningssamgöngum?


mbl.is Telja jarðgöng milli lands og Eyja tæknilega framkvæmanleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leigumiðlanir

Leiðumiðlanir á Íslandi eru merkilegt fyrirbrigði. Ef maður leitar að "leigumiðlun" á Google koma 20.100 niðurstöður.

Fyrsta sem kemur upp er heimasíðan "tilleigu.is". Síðan lítur vel út og maður hugsar sér gott til glóðarinnar, setur inn leitarskilyrðin og smellir svo á "Hefja leit". Skilaboðin "engar eignir fundust" kemur upp. Greinilegt að leitarskilyrðin voru of þröng þannig að maður víkkar þau og leitar aftur. "engar eignir fundust" kemur aftur upp. Ég prófaði að taka út öll skilyrði og leita. "engar eignir fundust" kemur aftur upp.

Svipaða sögu er að segja af heimasíðunni "Leiguskrá", nema ef maður tekur öll leitarskilyrði út þá koma 5 niðurstöður

Ég dáist að hugmyndafluginu sem þarf til að bjóða upp á svona mörg leitarskilyrði til að flokka á milli 5 íbúða.

 Leigulistinn virðist vera gagnlegasti og virkasti vefurinn, enda rukka þeir líka 2850 á mánuði. Spurning hvort það sé þess virði þegar maður skoðar þá staðreynd að það eru ekki nýskráðar meira en ca 2-3 tveggja herbergja íbúðir á dag og 3-4 þriggja herbergja íbúðir á dag. Flestar kosta þær hendi og fót.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband